Rangur staður og stund...
..Ætla rétt að kasta inn stuttri pælingu .. !!Kannist þið við það að þið eruð alltaf að gera allt sem allir vilja að þið gerið, þó það sé svo langt í frá að vera það sem þið sjálf viljið gera..!!
Svo þegar þið loksins eruð búin að ákveða að ykkur langar ekki alltaf að vera e-ð ROBOT og langar kanski að gera e-ð sem lætur ykkur líða vel og fyllir kanski uppí visst tómarúm .. en nei nei .. um leið og þú gerir eitt sem þig langar að gera þá verður allt vitlaust og allir ruglaðir.. og að sjálfsögðu verður þú að draga í land og verða ROBOTIÐ aftur ..
og verður að lúta þínu höfði og brosa bara og þykjast vera sátt við allt sem er að ske í kringum þig .. því ekki vill maður vera að kvarta yfir einhverjum smáatriðum meðan það er ekkert miðað við vandamál annarra.. !!Ég er búin að fá nóg af því að vera ROBOT .. en ætla samt sem áður að vera það og halda frið..

12. maí 2006 klukkan 01:20
Anna Margrét Steinarsdóttir
Anna Margrét Steinarsdóttir